Argentínumaðurinn Alexis Mac Allister hefur farið á kostum með Liverpool undanfarið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Hefur hann komið að sjö mörkum í síðustu sex leikjum en Liverpool er í toppsæti deildarinnar með 70 stig og mætir Manchester United í stórleik helgarinnar á Old Trafford á morgun.
Mörk og stoðsendingar Mac Allister í síðustu leikjum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.