Lykilleikmaður Liverpool kominn aftur í byrjunarliðið

Alisson Becker.
Alisson Becker. AFP/Peter Powell

Enski markmaðurinn Alisson Becker er kominn aftur í byrjunarlið Liverpool en hann hefur ekki spilað síðan í febrúar.

Caoimhin Kelleher stóð vaktina í hans stað en Kelleher hefur samtals spilað tíu leiki í deildinni því Alisson var eini að glíma við meiðsli í desember.

Liverpool mætir Crystal Palace klukkan 13.00 í dag og leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

Liverpool er í þriðja sæti í deildinni með 71 stig, jafn mörg og Arsenal en bæði lið eiga leik til góða á Manchester City sem er í fyrsta sæti með 73 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert