Klopp „spiluðum illa í fyrri hálfleik“

Jürgen Klopp klappar fyrir stuðningsmönnum eftir tap Liverpool í dag
Jürgen Klopp klappar fyrir stuðningsmönnum eftir tap Liverpool í dag AFP/ Paul ELLIS

Jürgen Klopp var óánægður með frammistöðu Liverpool gegn Crystal Palace á Anfield í Liverpoolborg í dag. Hann segir slakan fyrri hálfleik hafa orðið þeim að falli.

„Tölfræði okkar í fyrri hálfleik var ekki eins góð og í þeim síðari. Það er augljóst að við spiluðum ekki vel í fyrri hálfleik“.

„Við breyttum um leikaðferð í síðari hálfleik og á eðlilegum degi skorum við úr færunum okkar. Ef svo hefði verið stæðum við hér og töluðum um 4:1 sigur okkar en þannig virkar fótboltinn ekki“.

Tapið þýðir að Liverpool er skrefi á eftir Manchester City og Arsenal í titilbaráttunni á Englandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert