Það er misjafnt hvað fólk leggur á sig til að komast í fréttirnar nú eða til að ná árangri í einhverri íþróttagrein. Um tvö hundruð keppendur mættu til leiks í Gloucester á Englandi í gær til að keppa um hver þeirra yrði fyrstur til að rúlla osti niður brekku.
Um sex þúsund manns fylgdist með keppninni sem fram fór á Coopers hæð en hún hefur verið haldin þar árlega í rúm tvö hundruð ár.
Í ár var það bensínafgreiðslumaðurinn Chris Anderson, 21 árs, sem fór með sigur að hólmi en þetta er fimmtá árið í röð sem hann sigrar í keppninni.
En er ekki alltaf tekið út með sældinni að taka þátt í íþróttum því að átján keppendur urðu að leita sér læknishjálpar eftir keppnina vegna meiðsla. Er tekið fram að það séu mun færri heldur en í fyrra.