Bandarísk vopn til Sómalíu

Liðsmaður íslamista stendur vörð á götu í suðurhluta Mogadishu
Liðsmaður íslamista stendur vörð á götu í suðurhluta Mogadishu Reuters

Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur staðfest að bandarísk yfirvöld hafi sent vopn til stjórnarhers bráðabrigðastjórnarinnar í Sómalíu. Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að þetta hafi verið gert sem svar við hjálparbeiðni bráðabrigðastjórnarinnar sem á í vök að verjast gegn íslamistum í landinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Talsmaður ráðuneytisins Ian Kelly segir Bandaríkjastjórn ákveðna í að aðstoða yfirvöld í Sómalíu við að „hrinda sókn öfgamanna sem séu ákveðnir í að spilla tilraunum til að koma á friði og stöðugleika í Sómalíu." 

Bandarísk yfirvöld munu einnig veita yfirvöldum í Sómalíu hernaðarlega ráðgjöf en bandarískir hermenn eða sérfræðingar munu þó ekki fara til landsins.

Fréttaskýrendur segja yfirvöld í Bandaríkjunum slegin yfir hröðum uppgangi íslamista í Sómalíu að undanförnu. Þeir hafa náð stórum hluta landsins og hluta höfuðborgarinnar Mogadishu á sitt vald frá því eþíópískar hersveitir yfirgáfu landið fyrr á þessu ári.

Sjeik Sharif Sheikh Ahmed, forseti Sómalíu, fór í síðustu viku fram á neyðaraðstoð nágrannaríkja Sómalíu og alþjóðasamfélagsins til að verja yfirvöld bráðabrigðastjórnarinnar í landinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert