Það var þröng á þingi þegar hefðbundinn jólamarkaður var opnaður í miðborg Frankfurt í Þýskalandi í kvöld, en ekki eru allir þar í landi á eitt sáttir um ágæti jólasveinsins. Hefur hópur sem berst fyrir „jólasveinalausum“ svæðum skorið upp herör gegn rauðklædda jólasveininum sem kemur færandi hendi, og hvatt fólk til að hafa heilagan Nikuláus í heiðri í staðinn.
Andstæðingar rauðklædda jólasveinsins segja að hann hafi verið búinn til í Bandaríkjunum 1931 til að auglýsa Kóka kóla. Kominn sé tími til að Þjóðverjar snúi baki við þessum bandaríska „Santa“.
„Þau gildi sem heilagur Nikuláus stendur fyrir eru gjafmildi, hjálp og samstaða,“ segir talsmaður hópsins. „Hann er einmitt rétti maðurinn til að koma boðskap jólanna á framfæri.“