Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að engin formleg tilkynning hafi borist frá Birni Inga Hrafnssyni, borgarfulltrúa Framsóknarflokks, um að samstarfi flokkanna hafi verið slitið. Kjartan sat ásamt öðrum sjálfstæðismönnum á fundi í Höfða í dag. Þar ætlaði meirihluti borgarstjórnar að ræða um fjárhagsáætlun og fleiri mál en Björn Ingi kom ekki til fundarins.
Kjartan sagði að einu fréttirnar sem sjálfstæðismenn á fundinum hefðu fengið af þessum málum hefðu borist gegnum fjölmiðla. Sagðist hann ætla að láta Björn Inga njóta vafans meðan ekkert hefði verið staðfest.