Kajakróður í köldum sjó

Kajakræðarar létu sig ekki muna um að vakna snemma á laugardagsmorgni og demba sér í kaldan sjóinn við Geldinganes til að keppa um Reykjavíkurbikarinn á árlegri sumarhátíð Kajakklúbbsins.

Ekki létu þeir sér heldur róðurinn duga því að keppninni lokinni var tekin æfing í þyrlubjörgun á sjó með hjálp Landhelgisgæslunnar, og fengu þá ræðarar smjörþefinn af því hvernig það er að vera í sjónum undir öskrandi þyrluspöðum sem þeyta upp ölduróti.

Þeir sem ekki lögðu í volkið gátu svo fylgst með þurrum fótum á landi og gætt sér á pylsu og kóki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert