[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Unnið að niðurrifi Valhallar í kvöld.

Unnið að niðurrifi Valhallar í kvöld.

Innlent | mbl.is | 10.7.2009 | 21:42

Ekkert stendur eftir í kvöld

Slökkviliðsmenn á Þingvöllum undirbúa nú að brjóta niður þekjuna á síðasta hluta Hótel Valhallar sem enn stendur til að slökkva í glæðum þar undir. Ekkert mun því standa eftir af húsinu í kvöld.

Snorri Baldursson, aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, segir líklegt að slökkviliðsmenn verði að vinna fram undir miðnætti. Slökkviliðið var kallað út vegna brunans á fimmta tímanum í dag, en nú eru alls sjö slökkviliðsbílar á svæðinu.

„Það vantaði ekki græjurnar, húsið brann bara of hratt,“  segir Snorri. Hótel Valhöll er meira eða minna timburhús, þó nýjasti hlutinn, þar sem enn logar, sé steyptur.

mbl.is/Dagur Gunnarsson

mbl.is/Dagur Gunnarsson

„Það virðist nokkuð ljóst að það kviknaði í eldhúsinu út frá grilli og eldurinn hefur teygt sig upp í háfinn, þaðan í stokkinn og í þekjuna. Þaðan hefur hann breiðst út,“ segir Snorri. Nokkuð algengt er að eldsupptök verði með þessum hætti. „Þeir eru mjög hættulegir þessir háfar, það safnast fita innan í þá sem eldurinn breiðist auðveldlega út frá.“

Að sögn Snorra tókst að bjarga gaskútum sem voru inni í húsinu og einnig tókst að verja olíutank sem stóð bak við húsið. Því hefði ekki myndast verulegt hættuástand, en mikið puð hefði verið að slökkva eldinn.

mbl.is/Dagur Gunnarsson

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

Eldsvoði að Hótel Valhöll

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær