Boða kröfufund á laugardag

Kröfufundur verður haldinn á Austurvelli á laugardag
Kröfufundur verður haldinn á Austurvelli á laugardag mbl.is/Ómar Óskarsson

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða  til kröfufundar á laugardag klukkan 15:00 á Austurvelli. Fundarstjóri er Lúðvík Lúðvíksson en ræðumenn dagsins eru Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Bjarki Steingrímsson varaformaður VR.

Helstu kröfur aðstandenda fundarins eru: Leiðrétting höfuðstóls lána.
 Afnám verðtryggingar.
 Að veð takmarkist við veðandlag.
 Að skuldir fyrnist á 5 árum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert