Skora á forystu ASÍ og VR

Samtökin Nýtt Ísland boða til ellefta kröfufundar síns í dag.
Samtökin Nýtt Ísland boða til ellefta kröfufundar síns í dag.

Nýtt Ísland hefur sent frá sér áskorun þar sem skorað er á formann VR og forseta ASÍ að mæta á Austurvöll í dag og taka til máls á ellefta kröfufundi vetrarins.

Er skorað á verkalýðshreyfinguna að mótmæla aðgerðarleysi ríkistjórnar Íslands og ganga til liðs við fólkið í landinu sem berjist við gerspilltar bankastofnanir sem afskrifi tug milljarða króna af útrásarvíkingum en geri jafnframt heilu fjölskyldurnar heimilislausar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert