„Bíddu, þú ert sonur Jóns Péturssonar hástökkvara og ert svona lítill,“ var eitt það fyrsta sem Ragnar Jónsson fékk að heyra þegar hann hóf störf í lögregunni árið 1990. Ragnar starfar þó enn, er fremsti sérfræðingur landsins í blóðferlarannsóknum og tekur nú við formennsku Evrópudeildar Alþjóðasamtaka blóðferlasérfræðinga, fyrstur Norðurlandabúa. Meira
Héraðsdómur Reykjaness hefur sakfellt mann fyrir samræði við 13 ára stúlku, en maðurinn var aftur á móti sýknaður af nauðgun gegn sömu stúlku. Þá var hann sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn annarri stúlku á táningsaldri. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Meira
Danska lögreglan leitar nú Filippu, 13 ára stúlku, sem hvarf þegar hún var við blaðaútburð í heimabæ sínum Kirkerup í gær. Meira
Raunveruleikastjarnan Coco Austin var gagnrýnd af aðdáendum sínum á samfélagsmiðlum fyrir myndband sem hún birti en þar sést hún dansa heldur ögrandi spor ásamt sjö ára gamalli dóttur sinni, Chanel. Meira
Heimilisköttur í eigu ungrar stúlku sem hvarf eftir að snjóflóð féll á íbúðarhús í Neskaupstað á mánudagsmorgun er nú kominn í leitirnar heill á húfi, en lýst hafði verið eftir honum. Meira
Jóhannes Páll páfi II vissi af málum sem tengdust barnaníði kaþólskra presta í Póllandi og aðstoðaði við að hylma yfir þau áður en hann varð páfi árið 1978, að því er kemur fram í nýrri bók. Meira
Öryrkjabandalag Íslands hefur tekið ákvörðun um að styrkja málsókn 17 ára gamallar stúlku á einhverfurófi gegn Mosfellsbæ, fyrir hönd Varmárskóla, fyrir að veita henni ekki viðunandi kennslu þegar hún þurfti á því að halda vegna veikinda sinna og fötlunar. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins (ÖBÍ), segir málið geta verið fordæmisgefandi fyrir önnur börn í svipaðri stöðu. Meira
„Það er almennt talað mest um drengina sem lifa með Duchenne en sannleikurinn er sá að stelpur geta líka fengið Duchenne. Það er reyndar afar sjaldgæft og sennilega þess vegna sem fáir vita um það. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki mikið um þetta en ég held að ein af hverjum 50 milljón fæddum stúlkum geti fengið Duchenne. Sjúkdómurinn getur lýst sér vægar hjá þeim en hann getur einnig lýst sér nákvæmlega eins og hjá drengjunum eftir því sem ég hef lesið mér til um,“ segir Hulda Björk Svansdóttir í sínum nýjasta pistli. Meira
María Gomez, matarbloggari á Paz.is, hvetur foreldra til að hlusta á sitt eigið innsæi. Það sem hentar einu barni þarf ekki að henta þínu barni. Meira
Fimm konur hafa verið myrtar af körlum í Svíþjóð undanfarnar þrjár vikur. Í öllum tilvikum eru ódæðismennirnir tengdir konunum á einhvern hátt. Morðin hafa vakið hörð viðbrögð og er þess krafist að yfirvöld grípi til aðgerða til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi í Svíþjóð. Meira
Ung stúlka var flutt með sjúkrabíl á slysadeild í gærkvöldi eftir að hafa verið bitin af Rottweiler-hundi á skemmtistaðnum Röntgen í miðbæ Reykjavíkur. Ásgeir Guðmundsson, eigandi staðarins, staðfesti þetta við mbl.is. Meira
Hertogaynjan af Sussex, Meghan Markle, segir að lífið innan bresku konungsfjölskyldunnar hafi verið svo erfitt að um tíma hafi hún ekki viljað lifa lengur. Harry prins og Meghan komu fram í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey sem var sýndur í nótt og lýsti Meghan erfiðu lífi innan hirðarinnar. Meira
Foreldrar fimmtán ára gamallar stúlku, Nóra Quoirin, sem hvarf 4. ágúst 2019 og fannst látin níu dögum síðar, segjast hafa heyrt hávaða inni í skálanum sem fjölskyldan dvaldi í áður en hún hvarf í Malasíu. Yfirvöld þar í landi segja að ekkert saknæmt hafi átt sér stað. Meira
Sjö verða leiddir fyrir dómara í dag í Frakklandi þar sem ákveðið verður hvort þeir verða ákærðir fyrir aðild að morðinu á Samuel Paty í síðustu viku. Paty var afhöfðaður af 18 ára pilti eftir að hafa sýnt nemendum skopteikningar í tengslum við kennslu. Meira
Átján ára piltur ræðst á grunnskólakennara og afhöfðar fyrir það eitt að hafa sinnt skyldum sínum sem kennari, að ræða tjáningarfrelsið við nemendur sína. Meira
Rúmlega þrítugur Norðmaður hlaut í síðustu viku 13 ára fangelsisdóm fyrir barnaníð með því að hafa pantað kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum á aldrinum sex til 14 ára á Filippseyjum þar sem brotin voru framin og myndefni af þeim svo sent manninum í tölvu hans þar sem lögregla fann yfir eitt þúsund myndir og myndskeið. Meira
Hver er Kamala Harris er spurning sem fjölmiðlar hafa velt upp frá því Joe Biden greindi frá því í gær að hún yrði varaforsetaefni demókrata í komandi forsetakosningum. Valið hefur vakið ánægju meðal margra, ekki síst kvenna og svartra, en það markar ákveðin tímamót í sögu bandaríska lýðveldisins. Meira
Bloggarinn Guðrún Helga Sørtveit og kærasti hennar Steinar Örn Gunnarsson eignuðust dóttur á föstudaginn síðastliðinn, þegar djúp lægð gekk yfir landið. Meira
Þau voru leidd sem leið lá gegnum bæinn sinn og að lestinni sem flytja átti þau í Belzac-útrýmingarbúðirnar. Á miðri leið tók Jozefa Stahl örlagaríka ákvörðun, þegar gengið var fram hjá húsi í bænum lagði hún Ewu litlu dóttur sína, fáeinna mánaða, svo lítið bar á frá sér og faldi hana bak við runna. Meira
Lýsingar þekktrar leikkonu, Adèle Haenel, á því hvernig hún var beitt kynferðislegu ofbeldi af hálfu leikstjóra fyrstu myndarinnar sem hún lék í skekur franska kvikmyndaheiminn um þessar mundir. Haenel var tólf ára gömul þegar þetta var. Meira