Stórsigur City í Manchester-slagnum

Manchester City vann stórsigur á Manchester United, 4:1, í viðureign nágrannaliðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Robbie Fowler og Jonathan Macken komu City í 2:0, Paul Scholes minnkaði muninn, en Trevor Sinclair og Shaun Wright-Phillips tryggðu sigur City með tveimur mörkum seint í leiknum. Manchester United er því áfram í þriðja sæti deildarinnar og er nú 12 stigum á eftir toppliðinu Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert