18 ára aldursmunur á fyrirsætum Burberry

Cara Delevinge og Kate Moss eru hér saman í auglýsingunni …
Cara Delevinge og Kate Moss eru hér saman í auglýsingunni fyrir nýjasta Burberry ilminn. burberry.com

Fimmta ilmvatnið frá Burberry kom á markað nýverið og kallast ilmurinn einfaldlega My Burberry. Auglýsingaherferðin, sem var afhjúpuð fyrr í dag, fyrir nýja ilminn er ekki af verri endanum en bresku fyrirsæturnar Kate Moss og Cara Delevinge eru þar í aðalhlutverki.

Það sem þykir merkilegt við þetta tvíeyki að önnur þeirra er 40 ára gömul og hin er 22 ára og því eru 18 ár á milli þeirra.

Ilmatnið nýja ku vera innblásið af klassíska rykfrakkanum sem Burberry tískuhúsið er einna helst þekkt fyrir og að sjálfsögðu klæðast þær Moss og Delevinge slíkum frakka á ljósmyndunum sem Mario Testino sá um að taka.

Nýjasti Burberry ilmurinn kemur í fallegu glasi.
Nýjasti Burberry ilmurinn kemur í fallegu glasi. burberry.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál