Borgarstjórahjónin fögnuðu með Elísabetu og fjölskyldu

Garpur Elísabetarson, Einar Þorsteinsson, Elísabet Jökulsdóttir og Milla Ósk Magnúsdóttir.
Garpur Elísabetarson, Einar Þorsteinsson, Elísabet Jökulsdóttir og Milla Ósk Magnúsdóttir. Ljósmynd/Anton

Það var gestur í hverju sæti þegar verkið Saknaðarilmur var frumsýnt í Kassa Þjóðleikhússins á fimmtudagskvöldið. Um er að ræða leikrit eftir leikkonuna og leikstjórann, Unni Ösp Stefánsdóttur, sem byggt er á bókum skáldsins Elísabetar Jökulsdóttur, Saknaðarilmi og Aprílsólarkulda sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. 

Elísabet Jökulsdóttir var á meðal gesta. Þar var líka nýi borgarstjórinn í Reykjavík, Einar Þorsteinsson og eiginkona hans, Milla Ósk Magnúsdóttir sem er aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Fjölskylda Elísabetar mætti en litla frænka hennar, Vera Illugadóttir skærasta stjarna Rásar 1 og faðir hennar, Illugi Jökulsson voru á meðal gesta og líka Unnur Þóra Jökulsdóttir, stóra systir Elísabetar sem mætti með eiginmanni sínum Árna Einarssyni. 

Vera Illugadóttir og Illugi Jökulsson.
Vera Illugadóttir og Illugi Jökulsson. Ljósmynd/Anton
Unnur Þóra Jökulsdóttir og Árni Einarsson mættu eldhress. Unnur Þóra …
Unnur Þóra Jökulsdóttir og Árni Einarsson mættu eldhress. Unnur Þóra er systir Elísabetar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Unnur Ösp leikur Elísabetu Jökulsdóttur í sýningunni og myndu einhverjir segja að þetta væri hennar besti leikur hingað til. Eiginmaður hennar, Björn Thors, leikstýrir verkinu en hjónin hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina. Þau gerðu sýninguna Vertu Úlfur sem fjallaði um veikindi Héðins Unnsteinssonar. Þar lék Björn Héðinn og Unnur leikstýrði en í Saknaðarilmi snúast hlutverkin við.

Verkið er áhrifaríkt og sorglegt, en líka fyndið og óþægilegt. Kannski er það bara svolítið eins og lífið er, óútreiknanlegt með hæðum og lægðum. Fólk er hugsanlega mishreinskilið um hugsanir sínar og tilveru og þess vegna er fólk almennt ekki að tala um kynfæri foreldra sinna við annað fólk.

Stórum spurningum er varpað fram eins og til dæmis hvort áföll geti gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða? Hver og einn verður að svara þeim spurningum innra með sér.

En hvernig verður lítil draumlynd stúlka að manísku skáldi sem verður heltekin af ást á manni sem glímir við fíknisjúkdóm. Hvernig tekst henni að sogast inn í myrkrið? Var enginn til staðar fyrir hana? Þessi litla draumlynda stúlka er brotin og brjáluð en í Saknaðarilmi er sögð saga af tengslum og tengslaleysi foreldra og barna.

Í Saknaðarilmi gerir fullorðin skáldkona upp móðurmissi og gerir upp tilfinningar sínar til móður sinnar. Hún neyðist til að horfast í augu við erfiða æsku, föðurmissi, geðveiki og ástina. Elísabet var dóttir Jökuls Jakobssonar skálds sem féll frá þegar Elísabet var 19 ára. Móðir hennar, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður, skáld og ferðamaður, féll frá 2017. Af hverju náðu mæðgurnar aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra? 

Baldur Stefánsson og Björn Ólafsson.
Baldur Stefánsson og Björn Ólafsson. Ljósmynd/Anton
Mæðginin Elísabet Jökulsdóttir og Garpur Elísabetarson.
Mæðginin Elísabet Jökulsdóttir og Garpur Elísabetarson. mbl.is/Arnþór Birkisson
Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir.
Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson
Margrét Bjarnadóttir og Björn Thors.
Margrét Bjarnadóttir og Björn Thors. mbl.is/Arnþór Birkisson
María Huld Marka Sigfúsdóttir og Ólöf Arnalds.
María Huld Marka Sigfúsdóttir og Ólöf Arnalds. mbl.is/Arnþór Birkisson
Kristín Þorsteinsdóttir og María Ellingsen.
Kristín Þorsteinsdóttir og María Ellingsen. mbl.is/Arnþór Birkisson
Elín Hansdóttir og Anna Rún Tryggvadóttir.
Elín Hansdóttir og Anna Rún Tryggvadóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Tinna Gunnlaugsdóttir.
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Tinna Gunnlaugsdóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson
Baldur Stefánsson og Þóra Björk Ólafsdóttir.
Baldur Stefánsson og Þóra Björk Ólafsdóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson
Þórunn Sigurðardóttir og Magnús Geir Þórðarsson.
Þórunn Sigurðardóttir og Magnús Geir Þórðarsson. mbl.is/Arnþór Birkisson
Ljósmynd/Anton
Ljósmynd/Anton
Unnur Þóra Jökulsdóttir og Garpur Elísabetarson.
Unnur Þóra Jökulsdóttir og Garpur Elísabetarson. Ljósmynd/Anton
Milla Ósk Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Karitas Ríkharðsdóttir og Ragnar Auðun …
Milla Ósk Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Karitas Ríkharðsdóttir og Ragnar Auðun Árnason. Ljósmynd/Anton
Edda Björg Eyjólfsdóttir og Guðrún Norðfjörð.
Edda Björg Eyjólfsdóttir og Guðrún Norðfjörð. Ljósmynd/Anton
Edda Björg Eyjólfsdóttir og Elísabet Jökulsdóttir.
Edda Björg Eyjólfsdóttir og Elísabet Jökulsdóttir. Ljósmynd/Anton
Ebba Katrín Finnsdóttir og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir.
Ebba Katrín Finnsdóttir og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir. Ljósmynd/Anton
Þórður Magnússon.
Þórður Magnússon. Ljósmynd/Anton
Ólafur Egill Egilsson mætti með gula húfu.
Ólafur Egill Egilsson mætti með gula húfu. Ljósmynd/Anton
Björn Thors, Ebba Katrín Finnsdóttir og Magnús Geir Þórðarson.
Björn Thors, Ebba Katrín Finnsdóttir og Magnús Geir Þórðarson. Ljósmynd/Anton
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál