Er þetta vinsælasti jakki í heimi?

Jakkinn góði sem virðist vera að trylla lýðinn.
Jakkinn góði sem virðist vera að trylla lýðinn. Ljósmynd / skjáskot Zara

Tískuvöruverslunin Zara nýtur gríðarlegra vinsælda, en jakki úr smiðju þeirra er að gera allt vitlaust um þessar mundir.

Jakkinn er svo vinsæll að stofnaður hefur verið Instagram-reikningur honum til heiðurs, enda er hann hreinlega út um allt. Konur á öllum aldri virðast kunna að meta jakkann, sem er dökkblár með hvítu mynstri.

Jakkinn kostar 15.995 krónur hér á landi, en hann má sjá hér.

„Þegar þú hefur tekið eftir honum ferðu að sjá hann við hliðina á þér í lestinni, í röðinni þar sem þú ert að kaupa samloku eða í brúðkaupinu sem þú ert í,“ sagði stofnandi síðunnar í samtali við Daily Mail.

„Við sáum hann út um allt en okkur fannst enginn veita þessum látlausa jakka gaum, þar sem hann var að koma sér fyrir á götum Lundúnaborgar.“ Nú er bara spurning hvort jakkinn slái í gegn hérlendis.

Blaðamaður Daily Mail skartar jakkanum góða.

 Ferð í ísbúðina virðist verða enn betri í jakkanum. 

Eins og sjá má er vinsælt að klæðast jakkanum í lestinni.

Jakkinn höfðar til kvenna á öllum aldri.

#thatcoat is at masterpiece #workofart #cultural #masterpiece

A photo posted by That Coat (@thatcoat) on Jun 30, 2016 at 3:03am PDT

Þessi var svo ánægð með jakkann að hún ákvað að kaupa sér fleiri flíkur frá Zöru.




Jakkinn hefur rokið úr hillunum.
Jakkinn hefur rokið úr hillunum. Ljósmynd / skjáskot Zara
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál