Mikill áhugi fyrir leik Stjörnunnar og Inter

Margir vilja ná miðum á leik Stjörnunnar og Inter.
Margir vilja ná miðum á leik Stjörnunnar og Inter. Ljósmynd/KSÍ

Mikill áhugi virðist vera fyrir leik Stjörnunnar og Inter Mílanó sem eigast við í fyrri leiknum í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn í næstu viku.

Núna klukkan 12 hófst miðasala á leikinn og eins og sést á myndinni var komin biðröð fyrir framan miðasöluna. Það skal tekið fram að miðsalan sem hófst klukkan 12 er fyrir ársmiðahafa Stjörnunnar en á morgun hefst miðasala fyrir aðra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert