Örfáir miðar eftir á leik Stjörnunnar og Inter

Byrjunarlið Inter í leiknum gegn PAOK í gær.
Byrjunarlið Inter í leiknum gegn PAOK í gær. Ljósmynd/www.inter.it

Aðeins örfáir miðar eru eftir á viðureign Stjörnunnar og ítalska liðsins Inter sem eigast við í Evrópudeildinni á Laugardalsvellinum næstkomandi miðvikudagskvöld.

Miðar á leikinn runnu út eins og heitar lummur í gær þegar ársmiðahafar Stjörnunnar gátu keypt miða á leikinn. Klukkan 10 í morgun opnaði svo miðasala fyrir almenning en þá voru aðeins um 3700 miðar eftir.

„Um 4.000 miðar fóru í almenna sölu á miði.is í morgun og seldist stærsti hluti þeirra upp á fyrstu fimmtán mínútunum,“ segir Victor Olsen framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar í samtali við visi.is í dag en líklegt er að uppselt verði á leikinn fljótlega eftir hádegið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert