Rúnar Páll: Vorum miklu betri

„Þetta var góður fótboltaleikur af okkar hálfu. Við vorum miklu betri en KR-ingar allan leikinn,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir 3:2-útisigur á KR í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld.

„Við vorum reyndar smástund í gang og KR skoraði mark eftir hornspyrnu, sem var illa gert hjá okkur. En eftir það fannst mér KR-ingar ekki sjá til sólar og við vorum mikið betri það sem eftir var,“ sagði Rúnar Páll.

Viðtalið við Rúnar Pál má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert