Dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppni karla í knattspyrnu, Borgunarbikars KSÍ, í hádeginu. Stærsti leikurinn í 16-liða úrslitunum er leikur bikarmeistara Vals og Stjörnunnar.
3. deildarlið Ægis fær heimsókn frá Víkingi Reykjavík og 2. deildarlið Víðis fær Fylki í heimsókn. Íslandsmeistarar FH mæta Selfossi og ÍR, sem vann KA óvænt, mætir KR. ÍBV og Fjölnir mætast síðan í úrvalsdeildarslag.
Leikirnir fara fram frá 30. maí til 1. júní.
16-liða úrslit Borgunarbikarsins:
FH - Selfoss
ÍR - KR
ÍBV - Fjölnir
Víðir - Fylkir
Ægir - Víkingur R.
Valur - Stjarnan
ÍA - Grótta
Leiknir R. - Grindavík
Fylgst var með drættinum í beinni textalýsingu á mbl.is
Bikardráttur KSÍ | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 12:18 Textalýsing Þá er drættinum lokið. Stórleikur 16-liða úrslitanna er leikur Vals og Stjörnunnar. | |||
Augnablik — sæki gögn... |