Dómarinn hné niður á Víkingsvelli

Ásmundur Þór Sveinsson hné niður en náði að klára leikinn.
Ásmundur Þór Sveinsson hné niður en náði að klára leikinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásmundur Þór Sveinsson, dómari leiks bikarmeistara Víkings úr Reykjavík og Þróttar í deildabikar kvenna í fótbolta í kvöld, hné niður undir lok leiksins.

Gera þurfti hlé á leiknum í kjölfarið, en Ásmundur náði að klára leikinn. Samkvæmt Vísi var um bakmeiðsli að ræða en atvikið leit ekki vel út við fyrstu sýn. 

Var Ásmundur allan tímann með meðvitund, en þó virtist um tíma eins og flauta þurfti leikinn af. Dómarinn harkaði að sér að lokum og tókst að klára leikinn, sem Þróttur vann 5:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert