Alltaf með magann í buxunum

„Þú ert alltaf með magann í buxunum þegar þú horfir á þessa landsleiki,“ sagði Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, í samtali við mbl.is í Wroclaw í Póllandi í dag.

Kristjana verður í stúkunni þegar Ísland mætir Úkraínu í úrslitum umspilsins um sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2024 í Wroclaw í Póllandi klukkan 19:45 að íslenskum tíma.

Erfið viðtöl ef illa fer

Kristjana er mætt til Póllands til þess að fylgja eftir íslenska liðinu en  hún hefur verið einn af umsjónarmönnum EM-stofunnar á RÚV í gegnum tíðina.

„Ef leikurinn fer illa þá veistu að þú ert að fara í mjög erfið viðtöl,“ sagði Kristjana.

„Þú þarft að gíra þig upp í það en það er líka rosalega gaman þegar vel gengur,“ sagði Kristjana meðal annars en nánar er rætt við hana í myndbandinu hér fyrir ofan.

Kristjana Arnarsdóttir.
Kristjana Arnarsdóttir. mbl.is/Brynjólfur Löve
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert