Southampton fær Bertrand að láni

Ryan Bertrand er kominn í Southampton-búninginn.
Ryan Bertrand er kominn í Southampton-búninginn. Ljósmynd/Southampton

Southampton vinnur nú að því að stoppa í þau stóru göt sem myndast hafa í liðinu í sumar og gekk í kvöld frá samningi við Chelsea um að fá Ryan Bertrand að láni út komandi tímabil.

Bertrand er 24 ára gamall bakvörður og hefur verið á mála hjá Chelsea frá árinu 2006 en verið lánaður til fjölda félaga síðan þá, síðast til Aston Villa á síðustu leiktíð. Hann á að baki 2 A-landsleiki fyrir England.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert