QPR fær markvörð

Alex McCarthy er genginn í raðir QPR.
Alex McCarthy er genginn í raðir QPR. Ljósmynd/QPR

Enska úrvalsdeildarliðið QPR keypti í dag enska markvörðinn Alex McCarthy frá Reading, sem leikur deild neðar. McCarthy sem er 24 ára lék alla 44 deildarleiki Reading á síðustu leiktíð. Þá á hann 13 úrvalsdeildarleiki að baki með Reading síðan veturinn 2012-2013.

Hjá QPR mun McCarthy berjast um aðalmarkvarðarstöðuna við Robert Green sem hefur staðið í markinu í fyrstu tveimur leikjum liðsins í deildinni og fengið á sig fimm mörk, og Brian Murphy sem varði mark QPR þegar liðið féll úr leik í enska deildabikarnum í vikunni gegn Burton.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert