Stoke fær þýskan landsliðsmann

Mark Hughes, stjóri Stoke.
Mark Hughes, stjóri Stoke. AFP

Stoke City hefur fengið í sínar raðir þýska landsliðsmanninn Philipp Wollscheid að láni og hefur möguleika á að semja við hann til framtíðar.

Wollscheid er 25 ára gamall og hefur leikið tvo leiki með þýska A-landsliðinu. Hann er á mála hjá Bayer Leverkusen en hefur verið í láni hjá Mainz fyrri hluta tímabilsins. Hann hefur einnig spilað með Nürnberg en hann hefur spilað meira en 50 leiki með Leverkusen í þýsku deildinni.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert