Sanogo frá Arsenal til Palace

Yaya Sanogo.
Yaya Sanogo. Ljósmynd/www.arsenal.com

Crystal Palace er búið að fá framherjann Yaya Sanogo að láni frá Arsenal út leiktíðina.

Sanogo er 21 árs gamall Frakki sem kom til Arsenal frá franska liðinu Auxerre árið 2013. Hann hefur komið við sögu í 11 leikjum Arsenal frá því hann kom til þess.

„Hann er ungur leikmaður sem er afar lofandi og ég held að hann eigi eftir að falla vel inn í okkar lið,“ segir Alan Pardew, nýráðinn knattspyrnustjóri Crystal Palace.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert