Swansea styrkir sig

Kyle Naughton, til hægri, í leik Tottenham og Sheffield United …
Kyle Naughton, til hægri, í leik Tottenham og Sheffield United í deildabikarnum í gærkvöld. AFP

Velska knattspyrnufélagið Swansea City, sem Gylfi Þór Sigurðsson leikur með, gekk nú síðdegis frá kaupum á bakverðinum Kyle Naughton frá  Tottenham Hotspur og samdi við hann til hálfs fjórða árs.

Naughton er 26 ára gamall og hefur verið í röðum Tottenham frá 2009 en verið lánaður á þeim tíma til Middlesbrough, Leicester og Norwich. Hann hefur spilað 42 leiki með Tottenham í úrvalsdeildinni og lék 9 leiki með enska 21-árs landsliðinu á sínum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert