Forest ekki lengi að finna nýjan stjóra

Stuart Pearce var rekinn frá Nottingham Forest í dag.
Stuart Pearce var rekinn frá Nottingham Forest í dag. AFP

Enska B-deildarliðið Nottingham Forest var ekki lengi að finna eftirmann Stuarts Pearce sem rekinn var úr starfi knattspyrnustjóra hjá félaginu í dag.

Dougie Freedman var í kvöld ráðinn nýr stjóri liðsins en hann er fyrrverandi leikmaður félagsins og hefur stýrt liðum Crystal Palace og Bolton í ensku B-deildinni.

Pearce var ráðinn stjóri Forest síðastliðið sumar. Liðið byrjaði tímabilið vel undir hans stjórn en á síðustu vikum hefur hvorki gengið né rekið hjá því og það hefur hefur tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert