Chamberlain úr leik á ný

Alex Oxlade-Chamberlain leikur knattspyrnu á iðjagrænum völlum næstu vikurnar.
Alex Oxlade-Chamberlain leikur knattspyrnu á iðjagrænum völlum næstu vikurnar. AFP

Alex Oxlade-Chamberlain knattspyrnumaður hjá Arsenal er meiddur á hné á nýjan leik og verður frá keppni næstu sex til átta vikurnar að sögn Arsene Wenger knattspyrnustjóra liðsins. 

Chamberlain meiddist á hné í febrúar en var kominn á skrið aftur þegar meiðsin tóku sig upp. Hann missir þar af leiðandi af síðustu leikjum Arsenal á leiktíðinni auk þess sem kappinn getur afskrifað með öllu þátttöku með enska landsliðinu í Evrópukeppninni í Frakklandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert