Mourinho verður góður hjá United

John Terry telur að Mourinho eigi eftir að ná góðum …
John Terry telur að Mourinho eigi eftir að ná góðum árangri hjá Manchester United. AFP

John Terry, fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, telur að Manchester United hafi náð í frábæran knattspyrnustjóra en José Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning við United í síðustu viku.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir Manchester United og ég er viss um að stuðningsmenn og leikmenn United eru í skýjunum,“ sagði Terry sem leynir því ekki hann hefur mikið álit á Mourinho:

„Ég hef margoft sagt áður að hann (Mourinho) er besti knattspyrnustjóri sem ég hef unnið með á ferlinum.“

Mourinho var rekinn frá Chelsea í desember eftir að hafa stýrt Chelsea til sigurs í úrvalsdeildinni sjö mánuðum fyrr. „Þetta var óheppilegur endir hjá Chelsea en ég óska honum alls hins besta því hann er frábær maður. Hann verður góður hjá United, ég er viss um það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert