Mourinho gagnrýnir þá sem væla

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, vill ekki gera mikið úr fjarveru Paul Pogba enda hefur liðinu gengið ágætlega án hans.

United vann stórsigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni um helgina og hefur unnið alla fimm leikina sem liðið hefur spilað eftir að Pogba meiddist.

„Við söknum aldrei þeirra leikmanna sem eru meiddir heldur er það aðeins tækifæri fyrir aðra að sanna sig. Ef þú vælir alltaf yfir meiðslum þá virðist það vera sem svo að þú treystir ekki öðrum leikmönnum,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert