Gylfi í byrjunarlið Everton á ný

Gylfi Þór er í byrjunarliðliði Everton.
Gylfi Þór er í byrjunarliðliði Everton. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er kominn í byrjunarlið Everton á nýjan leik. Gylfi byrjaði á varamannabekknum í síðasta deildarleik, 2:0-tapinu gegn Leicester. Hann verður hins vegar með frá byrjun er Everton fær Watford í heimsókn kl. 16:30, en leikurinn er liður í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. 

Everton hefur gengið bölvanlega á leiktíðinni og er í 19. sæti sem stendur með aðeins tvo sigra í fyrstu 10 leikjunum. Watford er í 9. sæti með 15 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert