Van Gaal með föst skot á Mourinho

Louis van Gaal er ekki hrifinn af Jose Mourinho.
Louis van Gaal er ekki hrifinn af Jose Mourinho. AFP

Louis van Gaal, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, er ekki hrifinn af eftirmanni sínum, Jose Mourinho, og segir knattspyrnuna sem Portúgalinn bjóði upp á vera leiðinlega. 

Hollendingurinn var oft gagnrýndur fyrir að vera of varkár í stjóratíð sinni hjá United, en hann segist frekar vilja horfa á nágrannana í Manchester City. „Við spiluðum fótbolta sem var í lagi, en fótboltinn var ekki vel metinn á Englandi. Ég fékk mikla gagnrýni en nú er Mourinho að spila mun leiðinlegri fótbolta og hann fær ekki gagnrýni,“ sagði Van Gaal. 

„Þú þarft gæði til að spila góðan fótbolta og það er ljóst að City er með mun meiri gæði og því horfi ég frekar á Manchester City. United spilar mjög varnarsinnað en ég spilaði alltaf sóknarbolta þegar ég var við stjórn,“ bætti sá hollenski við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert