Eiður Smári: Það er eitthvað sem vantar

Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum Sport í gærkvöldi.

Í þættinum, þar sem er fjallað um enska boltann, ræddu þau m.a. lið Chelsea en Eiður Smári átti afar góða tíma hjá Chelsea á sínum tíma.

Sagði hann eitthvað vanta hjá liðinu núna sem hefur átt erfitt tímabil og sóknarleikurinn gengur ekki sem skildi.

Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert