Eiður Smári: Snýst um að koma sér í gegnum vikuna

„Á þessum tímapunkti tímabilsins snúast æfingarnar fyrst og fremst um aðhald,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen í Vellinum á Síminn Sport þegar rætt var um Arsenal.

Arsenal tyllti sér á toppinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn með þægilegum sigri gegn Wolves á útivelli, 2:0, en lykilmenn liðsins eru margir hverjir með flestar spilaðar mínútur í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Ert ekki að æfa til að verða betri

„Þú ert ekki að æfa eitthvað sérstaklega til þess að verða betri í næstu viku,“ sagði Eiður Smári.

„Þetta snýst um að koma sér í gegnum vikuna og vera eins ferskur og þú getur svo þú getir klárað heilan leik um næsti helgi,“ sagði Eiður Smári meðal annars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka