Þjóðverjinn hetja Arsenal (myndskeið)

Þjóðverjinn Kai Havertz var hetja Arsenal er liðið komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 2:1-heimasigri á Brentford í Lundúnaslag í kvöld.

Skoraði Havertz sigurmarkið undir lokin með skalla af stuttu færi. Declan Rice kom Arsenal yfir en Youane Wissa jafnaði fyrir Brentford eftir hræðileg mistök hjá Aaron Ramsdale í marki Arsenal.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert