Pereira sá um West Ham

Andreas Pereira (til vinstri) skoraði bæði mörk Fulham
Andreas Pereira (til vinstri) skoraði bæði mörk Fulham AFP/ HENRY NICHOLLS

Andreas Pereira skoraði bæði mörk Fulham í 2:0 sigri liðsins á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag. West Ham hefði getað farið upp fyrir Manchester United með sigri.

Fulham hafði tapað tveimur síðustu leikjum sínum og gert jafntefli við botnlið Sheffield United í þremur síðustu leikjum sínum. Andreas Pereira kom gestunum yfir á 9. mínútu og innsiglaði sigurinn á 72. mínútu eftir sendingu frá Alex Iwobi.

West Hams situr í 8. sæti eftir leikinn en Fulham er 6 stigum frá þeim í 12. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert