Knattspyrnumennirnir Erling Haaland og Phil Foden æfðu ekki með Englandsmeisturum Manchester City í dag.
Manchester City mætir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á fimmtudaginn kemur en liðið er í þriðja sæti með 73 stig, stigi frá Arsenal og Liverpool en á leik til góða.
Haaland og Foden sáust ekki á æfingu í dag en Haaland fór meiddur af velli gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á miðvikudaginn fyrir viku. Var hann síðan ekki með liðinu er það tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins með sigri á Chelsea, 1:0, um helgina.
Foden lék hins vegar allan þann leik en var ekki sjáanlegur á æfingu í dag.