Óbreytt ástand Bianchi

Jules Bianchi var brosmildur á blaðamannafundi í Suzuka þremur dögum …
Jules Bianchi var brosmildur á blaðamannafundi í Suzuka þremur dögum fyrir kappaksturinn örlagaríka. mbl.is/afp

Hálfum öðrum mánuði eftir slysið alvarlega í japanska kappakstrinum í Suzuka er líðan franska ökumannsins Jules Bianchi hjá Marussia óbreytt.

Frá þessu skýrði einn helsti stjórnand liðsins sem fylgst hefur náið með Bianchi og umönnun hans á sjúkrahúsi í Japan.  

„Ástand hans hefur ekkert breyst, það er stöðugt en krítískt,“ sagði Lowden í gærkvöldi en Bianchi hefur verið í dái allar götur síðan bifreið hans skall harkalega á gröfu við öryggisvegg í Suzukabrautinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert