Bandaríski ökumaðurinn Alexander Rossi mun þreyja frumraun sína í formúlu-1 um helgina er hann keppir fyrir Manor Marussia í stað Roberto Merhi.
Rossi mun keppa í mótunum sem eftir eru vertíðar nema í Rússlandi og Abu Dhabi en á þeim mótshelgum mun hann láta keppnina í GP2 en í þeirri formúlu er hann sem stendur í öðru sæti að stigum.
Melhi verður áfram hjá Manor sem reynsluökumaður og keppir aftur í hinum tilgreindu mótum tveimur.
Rossi var um tíma varaökumaður hjá Caterham en söðlaði um og gekk til liðs við Marussia á miðju síðasta ári, 2014.