Barrichello keppir ekki

Barrichello keppti í 327 mótum í formúlu-1, fleirum en nokkur …
Barrichello keppti í 327 mótum í formúlu-1, fleirum en nokkur annar ökumaður. mbl.is/williamsf1

Rubens Barrichello segist ekki við það að snúa aftur til keppni í formúlu-1 sem ökumaður Caterham í lokamótinu í Abu Dhabi. Hver ökumaðurinn á fætur öðrum hefur hafnað boði um að aka fyrir liðið.

Barrichello hafði gert samning við Caterham um að keppa í brasilíska kappakstrinum í Sao Paulo. Þangað komst liðið aldrei vegna fjárhagsvanda, og heldur ekki til bandaríska kappakstursins, sem fram fór viku fyrr í Austin.

Caterham hefur aðeins tilkynnt að Kamui Kobayashi muni keppa en æfingar keppnishelgarinnar hefjast á morgun og því fer hver að verða síðastur.

„Það hefði verið frábært að kveðja formúlu-1 öðru sinni í Brasilíu. Til að keppa einhvers staðar annars staðar hefði mér þurft að standa til boða samkeppnisfær bíll,“ sagði Barrichello.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert