Blokhin rekinn frá Dynamo Kiev

Oleg Blokhin.
Oleg Blokhin. AFP

Úkraínska knattspyrnuliðið Dynamo Kiev rak í dag goðsögnina Oleg Blokhin úr starfi þjálfara liðsins vegna slaks gengis þess á leiktíðinni.

Dynamo Kiev tapaði á heimavelli fyrir Shakhtar í fyrradag og það tap fyllti mælinn hjá stjórnendum félagsins. Dynamo Kiev er sem stendur í þriðja sæti og er sjö stigum á eftir toppliðunum Shakhtar og Dnipro.

Við starfi Blokhins tekur við fyrrum markamaskína liðsins, Sergei Rebrov sem um tíma lék með Tottenham og West Ham á Englandi. Rebrov mun stýra liðinu tímabundið en hann hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins undanfarin fjögur ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert