Müller tryggði Bayern sigur í Moskvu

Frá viðureign Bayern og CSKA Moskva í kvöld.
Frá viðureign Bayern og CSKA Moskva í kvöld. AFP

Þýsku meistararnir voru að tryggja sér 1:0 útisigur á CSKA Moskva í fyrsta leiknum í 2. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Það var þýski landsliðsmaðurinn Thomas Müller sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 22. mínútu. Bayern hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum, báða 1:0, en CSKA hefur tapað báðum leikjum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert