Danny skaut Benfica úr leik

Hulk (til hægri) og félagar í Zenit frá Pétursborg unnu …
Hulk (til hægri) og félagar í Zenit frá Pétursborg unnu Benfica í kvöld. AFP

Zenit frá Pétursborg vann portúgalska liðið Benfica 1:0 í frostinu í Rússlandi. Eina mark leiksins skoraði Danny á 79. mínútu en tap Benfica þýðir að liðið er nánast úr leik í Meistaradeildinni. Fylgst er með gangi mála í beinu lýsingunni MEISTARADEILDIN Í BEINNI hér á mbl.is.

Zenit er í 2. sæti C-riðils með sjö stig eins og stendur en seinni leikur riðilsins fer fram á eftir. Í toppsætinu er þýska liðið Bayer Leverkusen með níu stig en það mætir Monaco á eftir í Þýskalandi en franska liðið hefur fimm stig.

Zenit og Monaco munu væntanlega spila algjöran úrslitaleik í lokaumferðinni um 2. sætið í riðlinum.

Smelltu á  MEISTARADEILDIN Í BEINNI til að komast í beinu lýsinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert