Tvö frá Alfreð og Sociedad áfram

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. mbl.is/Ómar

Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði sín fyrstu mörk fyrir Real Sociedad í kvöld þegar lið hans vann Real Oviedo, 2:0, í seinni leik liðanna í 32ja liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar.

Fyrri leikur liðanna í Oviedo endaði 0:0. Alfreð braut ísinn fyrir sjálfan sig og Sociedad á 27. mínútu og bætti svo við öðru marki á 61. mínútu. Honum var skipt af velli á 84. mínútu.

Real Sociedad er því komið í 16-liða úrslitin og í kvöld tryggðu Getafe, Espanyol, Levante, Granada og Villarreal einnig sæti þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert