Real Madrid varð að sætta sig við jafntefli

Cristiano Ronaldo skoraði mark Real Madrid.
Cristiano Ronaldo skoraði mark Real Madrid. AFP

Real Madrid varð að sætta sig við 1:1 jafntefli á heimavelli gegn Villareal í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Cristiano Ronaldo kom Real Madrid yfir úr vítaspyrnu á 52. mínútu sem hann fékk sjálfur og var þetta 30. mark Portúgalans í deildinni á tímabilinu. Gerard Moreno jafnaði metin fyrir gestina á 64. mínútu og þar við sat en Madridingar sóttu stíft að marki Villareal á lokakaflanum en tókst ekki að knýja fram sigur.

Real Madrid er með 61 stig í efsta sæti, Barcelona er með 59 og Atlético Madrid er í þriðja sætinu með 54 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert