Hólmfríður með tvö í fyrsta leik

Hólmfríður Magnúsdóttir í baráttunni með íslenska landsliðinu.
Hólmfríður Magnúsdóttir í baráttunni með íslenska landsliðinu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Avaldsnes í 3:2 sigri á Arna-Björnar í fyrsta leik norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Hólmfríður skoraði á 21. og 49. mínútu leiksins. Fríða, eins og hún er gjarnan kölluð, er að hefja sitt þriðja keppnistímabil með Avaldsnes. Í fyrra lék hún 22 leiki og skoraði fimm mörk.

Þórunn Helga Jónsdóttir leikur einnig með Avaldsnes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert