Söderlund bjargvættur Rosenborg

Alexander Söderlund í leik með FH. Hann skoraði bæði mörk …
Alexander Söderlund í leik með FH. Hann skoraði bæði mörk Rosenborg í kvöld. mbl.is/Kristinn

Fyrrverandi FH-ingurinn Alexander Söderlund kom Rosenborg til bjargar í Þórshöfn í Færeyjum í kvöld en norska liðið lenti þar í miklu basli gegn Víkingi frá Götu í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA.

Leikurinn var markalaus þar til Söderlund náði að skora á 82. mínútu og hann innsiglaði síðan sigur Þrándheimsmanna með öðru marki í uppbótartíma, þannig að lokatölur urðu 2:0.

Þar með ætti eftirleikurinn að vera tiltölulega auðveldur fyrir Rosenborg í heimaleiknum eftir viku en sigurliðið mætir annaðhvort KR eða Cork City í 2. umferð keppninnar.

Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörn Rosenborg í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert