Markalaust hjá Nantes og Lyon

Kolbeinn Sigþórsson í leik með Nantes á tímabilinu.
Kolbeinn Sigþórsson í leik með Nantes á tímabilinu. AFP

Nantes gerði í kvöld markalaust jafntefli gegn stórliðinu Lyon í efstu deild franska fótboltans. 

Landsiðsmiðherjinn Kolbeinn Sigþórsson var varamaður hjá Nantes og kom inn á þegar 68 mínútur voru liðnar af leiknum. 

Nantes er í 10. sæti deildarinnar með 21 stig en Lyon er í 4. sæti með 26 stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert