Aumkunarvert og honum verður refsað

Serge Aurier og Laurent Blanc ræða málin á æfingu fyrr …
Serge Aurier og Laurent Blanc ræða málin á æfingu fyrr á leiktíðinni. AFP

Laurent Blanc, knattspyrnustjóri Frakklandsmeistara PSG, hefur tjáð sig varðandi þau níðyrði sem einn leikmanna hans lét falla um stjórann í samfélagsmiðlinum Periscope.

Leikmaðurinn sem um ræðir er varnarmaðurinn Serge Aurier sem Blanc fékk til PSG árið 2014. Aurier kallaði Blanc meðal annars hommatitt (e. faggot), í myndskeiði á Periscope. Hann hefur verið settur í ótímabundið bann og verður ekki með gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

Blanc var spurður út í hegðun Auriers á fréttamannafundi í dag og sagði:

„Ég lagði mig fram við að fá hann til Parísar og þetta eru þakkirnar sem maður fær. Þetta er aumkunarvert,“ sagði Blanc og ítrekaði að Aurier yrði refsað. Bakvörðurinn hefur átt fast sæti í liði PSG á leiktíðinni.

Aurier, sem er 23 ára gamall landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum eftir að hafa í fyrstu reynt að halda því fram að myndskeiðið væri falsað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert